Barcelona vann nauman 2-1 sigur gegn botnliði Real Valladolid í spænsku deildinni í gær. Börsungar eru með sjö stiga forystu en Real Madrid á leik til góða, gegn Celta Vigo í hádeginu.
Hansi Flick, stjóri Barcelona, hvíldi menn vegna komandi undanúrslitaleiks gegn Inter í Meistaradeildinni en fyrri leikurinn endaði með 3-3 jafntefli og sá seinni verður á þriðjudaginn.
Flick gerði níu breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Inter. Lamine Yamal byrjaði á bekknum en kom inn á 38. mínútu í stað Dani Rodriguez sem fór úr axlarlið.
Raphinha var settur inn í hálfleik og hann jafnaði leikinn 1-1 áður en Fermín López skoraði sigurmarkið.

„Ég var búinn að plana að láta Pedri og De Jong spila 45 mínútur á haus. Ég hefði líka viljað að Raphinha og Lamine hefðu spilað færri mínútur," segir Flick en flestir höfðu búist við öruggum sigri Börsunga gegn Valladolid, sem var fallið fyrir leikinn.
En Flick þurti að setja stjörnurnar inn af bekknum vegna þess hvernig leikurinn þróaðist.
„Ég er ekki svekktur út í neinn. Við gerðum níu breytingar, það komu ungir leikmenn inn og ég hef trú á þeim."
Athugasemdir