Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Antonio spilaði hálfu ári eftir hræðilegt bílslys
Mynd: EPA
Michail Antonio, leikmaður West Ham og landsliðs Jamaíku, spilaði sinn fyrsta leik í hálft ár í nótt þegar hann kom inn á fyrir Jamaíku í 1-0 tapi gegn Gvatemala í Gullbikarnum.

Antonio spilaði síðast þann 3. desember í 3-1 tapi West Ham gegn Leicester. Fjórum dögum síðar lenti hann í hræðilegu bílslysi þar sem hann fótbrotnaði illa.

Við tók stíf endurhæfing og þremur mánuðum síðar var hann byrjaður að æfa á fullu. Nú hálfu ári síðar hefur hann tekið risastórt skref og fékk að finna fyrir grasinu í rúmar fimm mínútur gegn Gvatemala.

Næsti leikur Jamaíku er gegn Gvadelúpeyjum á föstudaginn og verður athyglisvert að sjá hvort Antonio muni fá frekara tækifæri þá.


Athugasemdir
banner