Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   þri 17. júní 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða í dag - Inter og Dortmund í eldlínunni
Mynd: EPA
HM félagsliða er komið á fulla ferð og fyrsta umferðin heldur áfram í dag og nótt.

Dortmund mætir til leiks í dag en liðið mætir Fluminense frá Brasilíu í fyrsta leik dagsins klukkan 16. River Plate frá Argentínu mætir Urawa Red Diamonds frá Japan klukkan 19.

Ulsan frá Suður-Kóreu mætir Mameelodi Sundowns frá Suður Afríku. Þessi lið eru með Fluminense og Dortmund í F-riðli.

Þá mætast Monterrey frá Mexíkó og Inter í kvöld en liðin eru með River Plate og Urawa í E-riðli.

þriðjudagur 17. júní
16:00 Fluminense - Dortmund
19:00 River Plate - Urawa Red Diamonds
22:00 Ulsan - Mamelodi Sundowns
01:00 Monterrey - Inter
Athugasemdir
banner