Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   þri 17. júní 2025 00:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Ander Herrera á bekknum en sá rautt
Mynd: EPA
Boca Juniors 2 - 2 Benfica
1-0 Miguel Merentiel ('21 )
2-0 Rodrigo Battaglia ('27 )
2-1 Angel Di Maria ('45 , víti)
2-2 Nicolas Otamendi ('84 )
Rautt spjald: ,Andrea Belotti, Benfica ('72)Jorge Figal, Boca Juniors ('88)

Argentíska liðið Boca Juniors og portúgalska liðið Benfica mættust á HM félagsliða í kvöld.

Boca Juniors komst yfir eftir rúmlega tuttugu mínútna leik þegar Miguel Merentiel kom boltanum í netið af stuttu færi. Aðeins sex mínútum síðar bætti Rodrigo Battaglia við öðru markinu.

Ander Herrera, fyrrum leikmaður Man Utd og PSG, var í byrjunarliði Boca Juniors en þurfti að fara af velli rétt áður en liðið komst yfir.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Benfica vítaspyrnu þegar brotið var á Nicolas Otamendi. Atvikið var skoðað í VAR en Herrera var ekki sáttur og veittist að dómaranum meðan hann skoðaði atvikið en samherjar hans héldu honum frá.

Herrera fékk að líta rauða spjaldið fyrir hegðunina. Angel Di Maria skoraði úr vítinu og staðan því 2-1 í hálfleik.

Andrea Belotti, framherji Benfica fékk rautt spjald þegar tæpar 20 mínútur voru til leiksloka. Þrátt fyrir að vera manni færri náði Benfica að jafna metin þegar Otamendi skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu.

Hasarnum var ekki lokið því Jorge Figal, varnarmaður Boca Juniors, fékk rautt spjald þegar skammt var til loka leiksins. Fleiri mörk urðu ekki skoruð og jafntefli því niðurstaðan.

Liðin eru í C-riðli en Bayern er á toppnum eftir 10-0 sigur gegn Auckland City frá Nýja-Sjálandi.
Athugasemdir
banner
banner