Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 11:30
Brynjar Ingi Erluson
Heaton verður áfram hjá Man Utd
Mynd: Manchester United
Hinn 39 ára gamli Tom Heaton hefur samþykkt nýjan eins árs samning við Manchester United en þetta segir Fabrizio Romano á X í dag.

Heaton er uppalinn hjá Man Utd og var á mála hjá félaginu til 2010 áður en hann ákvað að leita á önnur mið.

Hann spilaði með Cardiff City, Burnley, Bristol City og Aston Villa áður en hann sneri aftur til United árið 2021 sem þriðji markvörður liðsins.

Mikil ánægja er með Heaton hjá United og hefur hann nú verið verðlaunaður með nýjum eins árs samningi.

Heaton hefur ekki spilað keppnisleik með United síðustu tvö ár, en virðist sáttur við hlutverk sitt og var einróma ákvörðun Ruben Amorim og þjálfarateymisins um að halda honum áfram á Old Trafford.

Athugasemdir