Florian Wirtz gengur formlega til liðs við Liverpool frá Leverkusen á næstu dögum.
Liverpool hefur náð samkomulagi við Leverkusen um 116,5 milljón punda kaupverð. Hann mun gangast undir læknisskoðun á föstudaginn þegar hann kemur úr fríi og í kjölfarið verða félagaskiptin formlega staðfest.

Bayern er þekkt fyrir að næla í alla sterkustu leikmenn Þýskalands og höfðu áhuga á Wirtz. Dortmund þekkir það vel að missa sína bestu menn til Bayern. Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri Dortmund, hefði þó frekar viljað sjá Wirtz fara til Bayern en Liverpool.
„Það er algjör synd fyrir þýskan fótbolta að leikmaður eins og Florian Wirtz sé að fara úr deildinni. Það hefði ekki verið vandamál fyrir mér ef hann hefði farið til Bayern, það hefði verið betra fyrir deildina," sagði Watzke.
Athugasemdir