
Kyle Walker er á leið til Everton, Milan og Napoli vilja Darwin Nunez og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins á þessum gleðilega þjóðhátíðardegi.
Kyle Walker (35), leikmaður Manchester City, hefur samþykkt að ganga í raðir Everton en hann gerir eins árs samning. (Sun)
Bryan Mbeumo (25), framherji Brentford, hallast frekar að Manchester United frekar en Tottenham, þó Thomas Frank, fyrrum stjóri hans hjá Brentford, hafi tekið við Lundúnafélaginu á dögunum. (Sky Sports)
Newcastle United hefur hafið viðræður við Brighton um brasilíska framherjann Joao Pedro (22). Newcastle hefur einnig áhuga á Ousmane Diomande (21), varnarmanni Sporting í Portúgal. (Telegraph)
Juventus hefur boðið Viktor Gyökeres (27), framherja Sporting, samningstilboð sem hljóðar upp á 11 milljónir evra í árslaun, en Svíinn hefur einnig verið orðaður við Arsenal og Man Utd. (Mirror)
Barcelona leiðir kapphlaupið um Nico Williams (22), vængmann Athletic Bilbao, en fjárhagsvandræði félagsins gæti hindrað skipti hans til spænska meistaraliðsins. (Sky Sports)
Tottenham er á leið í viðræður við Rennes um franska framherjann Arnaud Kalimuendo (23). (L'Equipe)
Manchester United hefur rætt við Eintracht Frankfurt um möguleikann á að kaupa franska framherjann Hugo Ekitike (22), en ekkert formlegt tilboð hefur verið lagt fram til þessa. (Sky Sports)
Napoli ætlar að reyna fá Alejandro Garnacho (20) eða Jack Grealish (29) í sumarglugganum, en ítölsku meistararnir eru aðeins reiðubúnir að greiða um 45 milljónir punda. (Sun)
AC Milan og Napoli hafa bæði áhuga á Darwin Nunez (25), framherja Liverpool og úrúgvæska landsliðsins. Liverpool vill fá 51 milljón punda. (Corriere dello Sport)
Atlético Madríd ætlar að reyna við Lucas Digne (31), bakvörð Aston Villa og franska landsliðsins ef félaginu tekst ekki að fa Andy Robertson (31) frá Liverpool. (Times)
Chelsea hefur opnað viðræður við Lyon um belgíska vængmanninn Malik Fofana (20). Nottingham Forest hefur einnig sýnt honum áhuga. (L'Equipe)
Marc-Andre ter Stegen (33), markvörður Barcelona og þýska landsliðsins, hefur hafnað tilboði tyrkneska félagsins Galatasaray. (Sport)
Athletic Bilbao, Marseille, Arsenal, Aston Villa, Inter og Napoli hafa öll sýnt Aymeric Laporte (31), leikmanni Al Nassr, áhuga. (AS)
Liverpool er komið í baráttuna við Manchester United, Chelsea og Newcastle um Tyler Dibling (19), leikmann Southampton og enska U21 árs landsliðsins. (Caught Offside)
Real Betis vill kaupa hlut í Antony (25), leikmanni Manchester United og brasilíska landsliðsins. (ABC)
Athugasemdir