Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 12:17
Brynjar Ingi Erluson
Sheffield United ætlar að fá nýjan stjóra
Mynd: EPA
Sheffield United hefur tekið ákvörðun um að reka Chris Wilder eftir að honum mistókst að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina.

Wilder stýrði Sheffield United í 3. sæti ensku B-deildarinnar á síðustu leiktíð og jafnaði um leið stigamet félagsins.

Hann fór með liðið alla leið í úrslit umspilsins og komst liðið í forystu gegn Sunderland í úrslitunum áður en það kastaði frá sér sigrinum á síðustu fimmtán mínútum leiksins.

Sky Sports segir að nú hafi Sheffield tekið ákvörðun um að fá nýjan stjóra fyrir næstu leiktíð og verður greint frá brottrekstri Wilder á næstu dögum.

Gary O'Neil, fyrrum stjóri Wolves, hefur verið orðaður við stöðuna, en Sky segir hann þó ekki vera í myndinni á þessum tímapunkti.
Athugasemdir