Flamengo 2 - 0 Esperance
1-0 Giorgian De Arrascaeta ('17 )
2-0 Luiz Araujo ('70 )
1-0 Giorgian De Arrascaeta ('17 )
2-0 Luiz Araujo ('70 )
Brasilíska liðið Flamengo var með þónokkra yfirburði þegar liðið mætti Esperance frá Túnis í fyrsta leik liðanna á HM félagsliða í nótt.
Flamengo komst yfir eftir rúmlega stundafjórðung þegar Giorgian De Arrascaeta skoraði eftir að boltinn barst til hans inn á teignum.
Jorginho var að spila sinn fyrsta leik fyrir Flamengo eftir að hafa gengið til liðs við félagið í sumar eftir að samningur hans við Arsenal rann út.
Þrátt fyrir mikla yfirburði náði Flamengo ekki að bæta við marki fyrr en á 70. mínútu en það gerði Luiz Araujo með frábæru skoti úr teignum eftir sendingu frá Jorginho og þar við sat.
Flamengo er því komið með þrjú stig í D-riðli eins og Chelsea sem lagði LAFC í gær.
Athugasemdir