
„Við mættum eitthvað litlir í dag og eftir allt í lagi byrjun þá tók Völsungur bara yfir á vellinum. Það var eins og hugarfarið hafi ekki verið rétt hjá mínu liði," sagði Siguður Hökuldsson, þjálfari Þórs, eftir 1-3 tap gegn Völsungi í Boganum í kvöld.
Þórsarar gerður þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Fylki á föstudag. Skörð höggvin í liðið, hafði það svona mikil áhrif?
„Ef það vantar átta menn þá auðvitað hefur það áhrif. En það á ekki að hafa þannig áhrfi að við spilum svona eins og við gerðum í fyrri hálfleik."
Þórsarar gerður þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Fylki á föstudag. Skörð höggvin í liðið, hafði það svona mikil áhrif?
„Ef það vantar átta menn þá auðvitað hefur það áhrif. En það á ekki að hafa þannig áhrfi að við spilum svona eins og við gerðum í fyrri hálfleik."
Lestu um leikinn: Þór 1 - 3 Völsungur
„Mér fannst við bara á afturlöppunum meiri hlutann af fyrri hálfleik. Mörkin sem við fáum á okkur eru þegar við erum í stöðum og klárir. Boltinn er bara skoppandi laus og dettur fyrir þá, það er bara ekki boðlegt."
„Ég bara hef ekki svör, skil ekki frammistöðuna í fyrri hálfleik. Þetta er eitthvað sem við erum búnir að vera mjög góðir í. Það var splunkuný miðja og allt það, en það var ekki þeim að kenna. Ákefðarstigið í fyrri hálfleik var mjög dapurt eftir að hafa komið úr tveimur frábærum leikjum þá var það mjög skrítið."
„Ég bjóst alveg við stemningu hjá þeim, krafti, fengu stuðningsmennina hingað. En það var kannski aðeins meiri kraftur en ég bjóst við, við hleyptum þeim upp í aðeins of mikla stemningu, þeir eru flott lið og áttu þetta svo sannarlega skilið."
„Hvernig við vorum á boltanum aftast og hvernig við ætluðum að spila okkur upp völlinn, það var ekki á nægilega háu plani. Mér fannst við litlir, vildum ekki fá boltann og vildum ekki vera með hann. Við ræddum það í hálflleik og bættum það í seinni hálfleik."
Þetta var annað tap Þórsara í Boganum á tímabilinu. Hefur þú áhyggjur af þessu?
„Þetta er bara nýbyrjað og allir að vinna alla og allt það. Þetta hefur verið góður heimavöllur fyrir okkur hingað til. Það var mjög slæmur fyrri hálfleikur á móti Keflavík, sem var svona eini dapri hálfleikurinn í sumar, svo þessi fyrri hálfleikur núna. Hann var aðeins öðruvísi en gegn Keflavík en samt keimlíkur. Ég held að þessi heimavöllur eigi eftir að vera góður fyrir okkur, þetta er bara nýbyrjað og við ætlum ekki að dvelja of mikið við þetta, ætlum að koma til baka eins og við gerðum eftir Keflavíkurleikinn og vinna hérna á mánudaginn," sagði Siggi.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir