Kolbeinn Þórðarson hefur átt gott tímabil með liði sínu Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur komið við sögu í öllum leikjum tímabilsins til þessa ef frá eru taldir tveir leikir þar sem hann var í leikbanni.
Hann hefur byrjað sex leiki og komið fjórum sinnum inn á. Mörkin til þessa eru orðin fjögur en tvö þeirra komu í sigri á Brommapojkarna um helgina. Þar spilaði Kolbeinn einungis fyrri hálfleikinn.
Hann hefur byrjað sex leiki og komið fjórum sinnum inn á. Mörkin til þessa eru orðin fjögur en tvö þeirra komu í sigri á Brommapojkarna um helgina. Þar spilaði Kolbeinn einungis fyrri hálfleikinn.
Samherji hans, miðvörðurinn Gustav Svensson, er mjög ánægður með miðjumanninn.
„Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur. Hann berst og vinnur fyrir liðið og eins og hefur komið í ljós er hann líka markaskorari. Hann er frábær utan vallar líka," sagði Svensson við Footballskanalen.
„Við erum svipaðir held ég. Við spáum ekki of mikið í hlutunum, heldur förum bara í verkið. Hann fær mörg högg á sig í kringum höfuðið en hann heldur alltaf áfram. Ég er hrifinn af svona týpum," bætti Svensson við.
Kolbeinn tjáði sig sjálfur eftir leikinn. „Ég tek hlaupin og það eru gæði í fyrirgjöfunum. Þá gerist þetta. Sem miðjumaður þarftu að taka hlaupin inn í teig. Ég geri það. Ég er með góðar tímasetningar á hlaupunum inn í teiginn og það er eitthvað sem ég er að vinna í. Þetta er að ganga þessa stundina," sagði Kolbeinn.
Gautaborg er í 6. sæti Allsvenskan með nítján stig eftir tólf leiki. Kolbeinn gekk í raðir Gautaborgar frá Lommel haustið 2023 og skrifaði í vetur undir nýjan samning við félagið sem gildir til 2028.
Athugasemdir