Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Efstur á lista til að taka við af Carrick
Steve Cooper.
Steve Cooper.
Mynd: EPA
Steve Cooper er sagður efstur á lista Middlesbrough til að taka við af Michael Carrick.

Þetta herma heimildir enska götublaðsins The Sun.

Carrick, sem er fyrrum miðjumaður Manchester United, var í gær rekinn eftir að hafa stýrt Middlesbrough frá 2022. Undir hans stjórn komst liðið einu sinni í umspilið í Championship-deildinni.

Cooper hefur verið án starfs eftir að hann var rekinn frá Leicester í nóvember síðastliðnum.

Hann hefur reynslu af því að koma liðum upp úr Championship en hann gerði það með Nottingham Forest á sínum tíma. Hann kom Swansea einnig tvisvar í umspilið.

Gary O'Niel, Rob Edwards, Sean Dyche, Steven Gerrard, Jon Dahl Tomasson, Robbie Keane, Danny Rohl og Brian Priske eru önnur nöfn sem veðbönkum þykja líkleg.
Athugasemdir
banner