Liverpool hefur engan áhuga á því að selja Luis Díaz í sumar samkvæmt Daily Mirror.
Díaz á tvö ár eftir af samningi sínum en hann hefur verið orðaður við önnur félög í sumar.
Díaz á tvö ár eftir af samningi sínum en hann hefur verið orðaður við önnur félög í sumar.
Þar á meðal eru Barcelona og Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Hann er sagður efstur á óskalista þessara félaga.
Samkvæmt The Athletic þá hafði Barcelona samband vegna Díaz en Englandsmeistararnir tjáðu þeim það að Kólumbíumaðurinn væri ekki til sölu.
Það kemur þó einnig fram að engar samningaviðræður séu hafnar við framherjann hjá Liverpool. Eins og sakir standa núna er ólíklegt að hann muni endursemja.
Athugasemdir