Gennaro Gattuso og Hajduk Split hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem stjóri króatíska liðsins.
Ítalinn tók við liðinu fyrir ári síðan og skrifaði undir tveggja ára samning en samningnum hefur verið rift eftir að liðið hafnaði í 3. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Rijeka sem varð meistari og Dinamo Zagreb.

Hann stýrði liðinu í alls 43 leikjum og liðið vann tuttugu, gerði fjórtán jafntefli og tapaði níu leikjum.
Gattuso er 47 ára gamall en hann lagði skóna á hilluna árið 2013 eftir farsælan feril. Hann hefur þjálfað lið á borð við AC Milan, Napoli, Valencia og Marseille á sínum þjálfaraferli.
Athugasemdir