Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Mikil samkeppni um Trafford
Mynd: EPA
Newcastle United er komið í baráttuna um James Trafford, markvörð Burnley. Times segir frá, en fjölmörg félög eru sögð áhugasöm um kappann.

Trafford er 22 ára gamall og var langbesti markvörður ensku B-deildarinnar á tímabilinu er Burnley vann sér sæti aftur í úrvalsdeildina.

Hann hélt hreinu í 29 leikjum og jafnaði um leið met þeirra Ray King og Jim Stannard sem náðu þessum árangri með Port Vale og Gillingham.

Times segir Newcastle hafa mikinn áhuga á því að landa Trafford og fá hann til að berjast við Nick Pope um markvarðarstöðuna.

Manchester City og Manchester United eru einnig sögð á eftir Trafford.

Markvörðurinn er uppalinn hjá City og myndi það henta félaginu vel að hafa hann fyrir Meistaradeildarhópinn þar sem það þarf að hafa að minnsta kosti fjóra uppalda leikemnn í hópnum.
Athugasemdir