Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 15:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Díaz mjög ánægður hjá Liverpool: Erum að ræða við önnur félög
Mynd: EPA
Luis Díaz, leikmaður Liverpool, hefur rætt um framtíð sína í kjölfar slúðurs um möguleg skipti til Barcelona eða Sádi-Arabíu í sumar.

Fyrr í dag var sagt frá því að Liverpool vildi ekki selja kólumbíska sóknarmanninn.

„Ég er mjög ánægður hjá Liverpool, ég hef alltaf sagt það," sagði Díaz á fréttamannafundi í dag. Hann er með kólumbiska landsliðinu sem á leik í forkeppni HM á morgun.

„Það hefur verið komið vel fram við mig frá fyrsta degi. Við erum að ræða við önnur félög, það er félagaskiptagluggi, það er eðlilegt. Við bíðum og sjáum hvað gerist."

„Ef Liverpool framlengir við mig, eða ef ég verð bara áfram þessi tvö ár sem ég á eftir af þessum samningi, þá verð ég glaður. Þetta er undir þeim komið,"
hefur talkSPORT eftir Díaz af fréttamannafundinum.
Athugasemdir
banner