Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Átti frábæra innkomu gegn Spánverjum - Staðfesti samkomulag við Man City
Mynd: EPA
Rayan Cherki er á leið til Man City frá Lyon en hann staðfesti þetta eftir tap Frakklands gegn Spáni í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í kvöld.

Frakkland tapaði 5-4 í ótrúlegum leik en Cherki kom inn á og skoraði þriðja og lagði upp fjórða mark Frakka. Þetta var fyrsti A-landsleikurinn hans.

Frakkland hefur ekki lokið leik á mótinu því liðið mætir Þýskalandi í leik um þriðja sætið á sunnudaginn.

„Já þetta er að verða búið. Það er enn einn leikur eftir, nú verðum við að njóta og gefa allt í þetta en svo klárast þetta," sagði Cherki.
Athugasemdir
banner
banner