Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Konate nefndi Salah ekki á nafn í Ballon d'Or umræðunni
Mynd: EPA
Ibrahima Konate, varnarmaður Liverpool og franska landsliðsins, segir að Ousmande Dembele verðskuldi það að vinna Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu í ár.

Dembele átti ótrúlegt tímabil með Paris Saint-Germain. Hann varð franskur deildar- og bikarmeistari og átti síðan stórkostlega frammistöðu er PSG slátraði Inter, 5-0, í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Frakkinn kom að 48 mörkum í 49 leikjum í öllum keppnum og er hann nú talinn leiða baráttuna um verðlaunin.

Konate, sem er liðsfélagi Dembele í landsliðinu, segir hann vera verðugasta leikmanninn til að hreppa verðlaunin, en það kom kannski örlítið á óvart að hann hafi ekki nefnt Mohamed Salah, liðsfélaga sinn hjá Liverpool, á nafn.

Salah og Konate urðu Englandsmeistarar með Liverpool og kom Salah að 57 mörkum í öllum keppnum, þar af 47 mörkum í ensku úrvalsdeildinni.

„Við tölum um Lamine Yamal og Kylian Mbappe, en enginn talar um Ousmane Dembele. Hann hefur skilað ótrúlegri frammistöðu á þessu tímabili. Ég á engin lýsingarorð um hann. Það bjóst enginn við þessu og er ég ekkert eðlilega ánægður fyrir hans hönd. Ousmane Dembele á mest allra skilið að vinna Ballon d'Or,“ sagði Konate.
Athugasemdir
banner
banner