
Jason Wilcox (t.v.) tekur við stöðunni af Sir Dave Brailsford (f.m). Með þeim á myndinni er Sir Jim Ratcliffe sem er til hægri
Jason Wilcox, tæknilegur stjórnandi hjá Manchester United, er að taka við sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, en þetta verður ein af mörgum breytingum sem verða gerðar í sumar. Athletic segir frá.
Sir Dave Brailsford mun stíga til hliðar eftir að hafa sinnt starfi yfirmanns fótboltamála og heldur áfram að vinna sem yfirmaður íþróttamála hjá INEOS-hópnum.
Wilcox, sem kom til Man Utd á síðasta ári, hefur unnið gott starf sem tæknilegur stjórnandi og fær nú stöðuhækkun, en hann mun nú alfarið sjá um fótboltamálin.
Sir Jim Ratcliffe, hluteigandi Man Utd, ætlar að halda áfram að gera breytingar á innviði félagsins.
Félagið mun gera hreinsun á leikmannahópnum og bæta við sig nýjum leikmönnum fyrir komandi tímabil.
Man Utd átti versta tímabil í sögu félagsins í ár, en það hafnaði í 15. sæti deildarinnar og missti af Meistaradeildarsæti og Evróputitli er það tapaði fyrir Tottenham, 1-0, í úrslitum Evrópudeildarinnar í Bilbao.
Athugasemdir