Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Danso: Tottenham á fleiri stuðningsmenn en Arsenal
Mynd: EPA
Evrópudeildarmeistarinn Kevin Danso er á þeirri skoðun að Tottenham eigi fleiri stuðningsmenn en Arsenal í Norður-Lundúnum.

Danso vann Evrópudeildina með Tottenham í Bilbao á Spáni á dögunum áður en ferðinni var heitið aftur til Lundúna fyrir sérstaka skrúðgöngu.

Það var þá sem Danso áttaði sig á stærð félagsins, en hann er fastur á þeirri skoðun að Tottenham eigi fleiri stuðningsmenn en Arsenal í höfuðborginni.

Talið er að um 200 þúsund manns hafi mætt í skrúðgönguna, en Danso mun seint gleyma kvöldinu í Bilbao og dögunum sem komu á eftir.

„Kvöldið í Bilbao var og er enn ótrúlegt. Ég áttaði mig ekki á því á vellinum því ég renndi mér á hnjánum fyrir framan stuðningsmennina. Það var ekki fyrr en tveimur dögum seinna sem ég áttaði mig á því að ég væri Evrópudeildarmeistari.“

„Ef þú ert ekki sjálfur í Lundúnum þá áttar þú þig ekki almennilega á því á því hversu stór stuðningsmannahópur Tottenham er í raun og veru. Ef þú horfir á þetta utan frá þá heldur þú að Arsenal eigi fleiri stuðningsmenn í Norður-Lundúnum, en mín skoðun er sú að það eru fleiri sem styðja Tottenham,“
sagði Danso.
Athugasemdir
banner
banner