Mohamed Kudus hefur verið orðaður í burtu frá West Ham en Sky Sports greinir frá því að félag í Sádi-Arabíu var tilbúið að borga um 70 milljónir punda fyrir hann.
Þar kemur þó fram að Kudus vilji ekki fara til Sádi-Arabíu og hafnaði risatilboði.
Hann fékk samningstilboð sem myndi rúmlega þrefalda launin hans.
Hann vill spila í Meistaradeildinni en hann mun líklega yfirgefa félagið. Hann gekk til liðs við West Ham frá Ajax fyrir tveimur árum en Lundúnafélagið borgaði 38 milljónir punda fyrir hann.
Athugasemdir