Klukkan 18:00 mætir íslenska U21 landsliðið brasilíska U20 landsliðinu í vináttuleik. Íslenska liðið er að undirbúa sig fyrir undankeppni EM sem hefst í haust og Brassarnir eru að undirbúa sig fyrir HM U20 liða sem fram fer í haust.
Leikurinn fer fram í Kaíró í Egyptalandi og er Ólafur Ingi Skúlason búinn að velja byrjunarliðið. Tveir leikmenn í byrjunarliðinu er að spila sinn fyrsta leik í þessum aldursflokki. Það eru þeir Nóel Atli Arnórsson og Kjartan Már Kjartansson, báðir eru fæddir árið 2006. Þriðji nýliðinn í hópnum er svo Tómas Orri Róbertsson og er hann á bekknum.
Til stóð að leikurinn yrði í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en af tæknilegum orsökum á leikstað í Egyptalandi verður því miður ekki af því.

Byrjunarliðið
Lúkas J. Blöndal Petersson
Hlynur Freyr Karlsson
Logi Hrafn Róbertsson
Nóel Atli Arnórsson
Daníel Freyr Kristjánsson
Guðmundur Baldvin Nökkvason
Kjartan Már Kjartansson
Baldur Kári Helgason
Hinrik Harðarson
Hilmir Rafn Mikaelsson
Róbert Frosti Þorkelsson
Varamenn: Halldór Snær Georgsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Haukur Andri Haraldsson, Benoný Breki Andrésson, Eggert Aron Guðmundsson, Baldvin Þór Berndsen, Tómas Orri Róbertsson, Helgi Fróði Ingason, Ágúst Orri Þorsteinsson
Athugasemdir