
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var besti leikmaður Íslands í síðasta landsliðsglugga. Hún átti mjög góðan leik gegn Noregi og fylgdi því eftir gegn Frakklandi.
Cecilía var markvörður ársins á Ítalíu og vann sér sæti í byrjunarliði landsliðsins út frá því. Hún virðist hafa neglt sæti sitt í byrjunarliðinu fyrir EM sem hefst í næsta mánuði.
Cecilía var markvörður ársins á Ítalíu og vann sér sæti í byrjunarliði landsliðsins út frá því. Hún virðist hafa neglt sæti sitt í byrjunarliðinu fyrir EM sem hefst í næsta mánuði.
Rætt var um Cecilíu í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann í gær.
„Þvílík gæði," sagði Orri Rafn Sigurðarson um Cecilíu í Uppbótartímanum.
Í leiknum gegn Frakklandi átti hún ótrúlega markvörslu í fyrri hálfleik þar sem hún varði alveg við stöng.
„Það er besta markvarsla sem ég hef séð á þessu stigi," sagði Gylfi Tryggvason. „Ég hef aldrei séð svona áður. Vænghafið, guð minn almáttugur. Ég hef aldrei séð svona markvörslu og trúði þessu ekki."
Hægt er að sjá markvörsluna í útsendingu RÚV með því að smella hérna. Markvarslan kemur eftir tæpar 13 mínútur í leiknum.
Athugasemdir