Spænska félagið Real Madrid er alvarlega að íhuga það að sækja króatíska framherjann Ante Budimir frá Osasuna í sumar.
Budimir er 33 ára gamall og hafði eflaust gefið það upp á bátinn að spila með einu stærsta félagi heims.
Hann hefur aðeins spilað með félögum sem eru að berjast um miðja deild eða í fallbaráttu síðustu ár.
Síðustu tvö tímabil hefur hann verið iðinn við kolann með Osasuna og fór langt fram úr væntingum á síðustu leiktíð með því að skora 24 mörk í öllum keppnum.
AS segir að Real Madrid sé óvænt að íhuga að sækja Budimir í glugganum.
Xabi Alonso, nýr þjálfari Madrídinga, vill fá hreinræktaðan framherja í hópinn og er Budimir þar sagður mjög ofarlega á lista.
Þetta myndi minna svolítið á þegar Madrídingar fengu Joselu frá Espanyol á síðasta ári. Þá var hann einmitt 33 ára gamall og fékk tækifærið til að spila með Madrídingum, sem hann hafði stutt alla sína ævi, og reyndist hann síðan hetja liðsins í Meistaradeildinni.
Hann skoraði tvö mörk í undanúrslitunum gegn Bayern München og átti þar með risastóran þátt í að liðið vann keppnina, en hann hafði einnig skorað gegn Atlético Madríd í Ofurbikarnum.
Joselu lauk tímabilinu með 18 mörkum í öllum keppnum áður en hann hélt til Al-Gharafa í Katar.
Athugasemdir