Brentford hefur hafnað fyrsta tilboði Manchester United í Kamerúnann Bryan Mbeumo. Það er Sky Sports sem greinir frá.
David Ornstein hjá The Athletic sagði frá tilboðinu í gærkvöldi en það hljóðaði upp á 45 milljónir punda plus 10 milljónir punda í árangurstengdum gjöldum.
David Ornstein hjá The Athletic sagði frá tilboðinu í gærkvöldi en það hljóðaði upp á 45 milljónir punda plus 10 milljónir punda í árangurstengdum gjöldum.
Brentford vill fá að lágmarki 60 milljónir punda fyrir Mbeumo sem félagið metur svipað verðmætan og Matheus Cunha sem United greiddi rúmlega 60 milljónir punda til að fá lausan frá Wolves.
Mbeumo verður 26 ára í ágúst. Hann átti frábært tímabil í vetur, skoraði 20 mörk og lagði upp átta í 38 úrvalsdeildarleikjum. Hann á ár eftir af samningi sínum við Brentford en félagið getur framlengt þann samning um ár til viðótar.
Það er ljóst að ef Mbeumo verður seldur í þessum glugga þá verður sú sala sú hæsta í sögu Brentford. Salan á Ivan Toney síðasta sumar til Sádi-Arabíu var þá metsala en Brentford fékk 40 milljónir punda fyrir enska framherjann.
Athugasemdir