Florian Wirtz, verðandi leikmaður Liverpool á Englandi, kom Þjóðverjum í forystu gegn Portúgal með umdeildu marki í undanúrslitum Þjóðadeildar Evrópu í kvöld.
Wirtz skoraði markið snemma í síðari hálfleiknum eftir stoðsendingu Joshua Kimmich.
Kimmich fékk boltann frá Wirtz áður en hann lyfti boltanum yfir vörnina og aftur á Wirtz sem stangaði boltann í fjærhornið.
Markið átti líklegast ekki að standa en Nick Woltemade, framherji Þjóðverja, var rangstæður og hindraði Ruben Dias í teignum, en samt sem áður fékk markið að standa.
Portúgal er búið að jafna metin þegar hálftími er eftir en markið gerði Francisco Conceicao.
Sjáðu markið hjá Wirtz
Athugasemdir