Frakkland og Spánn eigast við í síðari undanúrslitaleik Þjóðadeildar karla á MHP-leikvanginum í Stuttgart í Þýskalandi klukkan 19:00 í kvöld.
Portúgal kom sér í úrslit með því að leggja heimamenn í Þýskalandi að velli, 2-1, í gær.
Meistarar síðustu tveggja keppna mætast í kvöld. Spánverjar eru ríkjandi meistarar en Frakkar unnu árið 2021.
Það verður hörku barátta um sæti í úrslitum en sigurvegarinn mætir Portúgal á Allianz-leikvanginum á sunnudag.
Leikur dagsins:
19:00 Spánn - Frakkland
Athugasemdir