Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard: Wirtz er hæfileikabúnt og vonandi getum við gert þetta að veruleika
Mynd: EPA
Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, segir vonast til þess að félagið geti gengið frá kaupum á þýska landsliðsmanninum Florian Wirtz í sumar.

Liverpool er í viðræðum við Leverkusen um Wirtz og fer að styttast í samkomulag.

Wirtz, sem er 22 ára gamall, verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en enskir fjölmiðlar tala um að hann muni kosta í kringum 126 milljónir punda.

Gerrard er spenntur fyrir Wirtz en hann ræddi við TNT Sports um leikmanninn og segist vonast til þess að Liverpool geti landað honum

„Það er orðrómur um Florian Wirtz. Hann er hæfileikabúnt sem hefur gert frábærlega fyrir Xabi Alonso hjá Leverkusen. Hann á mikla framtíð fyrir sér, þannig ef Liverpool er rétti staðurinn fyrir hann þá getum við vonandi gert þetta að veruleika,“ sagði Gerrard.

Samkvæmt blaðamönnunum Fabrizio Romano og David Ornstein eru viðræðurnar komnar langt á veg og að nú sé verið að ræða árangurstengdar greiðslur og aðra bónusa. Það má væntanlega búast við frekari fregnum á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner