Goncalo, sonur Bruno Fernandes, æfði með FH hér á dögunum ef dæma má mynd sem eiginkona leikmannsins, Ana Pinho, deilir á samfélagsmiðlum.
Svo virðist sem Pinho hafi verið hér á landi ásamt börnum, en Fernandes sjálfur hafi ekki verið með í för. Það hefur verið nóg að gera hjá honum eftir að tímabilið kláraðist en hann er núna í landsliðsverkefni með Portúgal eftir að hann fór í æfingaferð til Malasíu með Manchester United.

Fernandes, sem er fyrirliði Man Utd, og fjölskylda hans eru með sterka Íslandstengingu þar sem þau eru miklir vinir Jóhanns Bergs Guðmundssonar og eiginkonu hans, Hólmfríðar Björnsdóttur.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af syni Bruno í treyju FH en hann er númer 8, eins og pabbi sinn.
Athugasemdir