Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kerkez ekki með Ungverjum á morgun - Á leið til Liverpool
Mynd: EPA
Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins, staðfesti á fréttamannafundi í dag að Milos Kerkez, vinstri bakvörður landsliðsins, verði ekki með liðinu í vináttuleiknum gegn Svíum á morgun.

Ástæðan fyrir því er líklega sú að Liverpool er að ganga frá kaupum á leikmanninum. Kerkez átti frábært tímabil með Bournemouth og eru líkur á að hann verði önnur kaup Liverpool í sumar á eftir Jeremie Frimpong.

Liverpool greiðir allt að 40 milljónir punda fyrir leikmanninn en búið er að ganga frá viðræðum milli Liverpool og Kerkez, einungis á eftir að klára kaupsamninginn.

Kerkez er 21 árs og var að klára sit annað tímabil með Bournemouth eftir að hafa verið fenginn frá AZ Alkmaar sumarið 2023.
Athugasemdir
banner
banner