Spánverjar eru tveimur mörkum yfir gegn Frökkum í hálfleik í seinni undanúrslitaleiknum í A-deild ÞJóðadeildarinnar.
Liðið komst yfir eftir 22 mínútur þegar Mikel Oyarzabal fékk boltann inn á teignum frá Lamine Yamal og gerði mjög vel að koma boltanum á Nico Williams sem skoraði.
Liðið komst yfir eftir 22 mínútur þegar Mikel Oyarzabal fékk boltann inn á teignum frá Lamine Yamal og gerði mjög vel að koma boltanum á Nico Williams sem skoraði.
Aðeins þremur mínútum síðar bætti Mikel Merino við öðru marki þegar Oyarzabal sendi laglega sendingu í gegn og Merino skoraði með skoti á nærstöngina framhjá Mike Maignan í marki Frakka.
Undir lok fyrri hálfleiks kom Dean Hujisen boltanum í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Sigurvegarinn mætir Portúgal í úrslitum á sunnudaginn.
Sjáðu markið hjá Williams
Sjáðu markið hjá Merino
Athugasemdir