
Fyrsta kvennalandslið Íslands voru heiðursgestir þegar nýja grasið á Laugardalsvelli var vígt síðastliðið þriðjudagskvöld.
Íslenska kvennalandsliðið mætti þá Frakklandi og var niðurstaðan 0-2 tap í hörkuleik.
Íslenska kvennalandsliðið mætti þá Frakklandi og var niðurstaðan 0-2 tap í hörkuleik.
Stelpurnar eru á leiðinni á sitt fimmta Evrópumót í sumar en þetta var síðasti heimaleikurinn fyrir það mót. Fyrir leikinn heilsaði núverandi landslið upp á fyrsta landsliðið sem mætti Skotum í september árið 1981.
Á meðal leikmanna í fyrsta landsliðinu var Ragnheiður Víkingsdóttir, móðir Hildar Antonsdóttur, núverandi landsliðskonu. Hildur skrifaði fallega færslu á Instagram eftir leikinn gegn Frakklandi.
„Þakklát fyrir mömmu mína og allar hinar sem börðust fyrir kvennaknattspyrnu á sínum tíma og öllum þeim sem komu á eftir þeim," skrifaði Hildur.
„Án þeirra væri ómögulegt fyrir mig og fleiri að hafa fótbolta sem atvinnu í dag."
Athugasemdir