Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Velur á milli PSG og Real Madrid
Mynd: EPA
Argentínska undrabarnið Franco Mastantuono mun að öllum líkindum velja á milli Paris Saint-Germain og Real Madrid í sumar, en þetta segir Fabrizio Romano.

Mastantuono er 17 ára gamall miðjumaður sem er þegar orðinn fastamaður í byrjunarliði River Plate í heimalandinu.

Síðasta árið hefur hann spilað 61 leik og skorað 10 mörk fyrir aðalliðið, en þetta tímabil verður hans síðasta í Argentínu í bili því nú kallar Evrópuboltinn.

Paris Saint-Germain hefur leitt kapphlaupið hingað til, en nú er komið babb í bátinn. Real Madrid hafði samband við föruneyti Mastantuono til að athuga hvort hann væri búinn að gera samkomulag við PSG, en svo er ekki.

Madrídingar eru því komnir inn í baráttuna, en hann er með 55 milljóna evra kaupákvæði í samningi sínum.

Það má því segja að Real Madrid sé með yfirhöndina en draumur Mastantuono frá blautu barnsbeini er að spila fyrir spænska félagið.

PSG er aftur á móti með Jorge Campos sem yfirmann íþróttamála og er sannfæringarmáttur hans betri en hjá flestum.
Athugasemdir
banner