Fjórir leikir fara fram í Lengjudeild kvenna í kvöld og þá er grannaslagur spilaður í síðasta leiknum í 6. umferð 2. deildar karla.
HK, sem deilir toppsætinu með ÍBV, mætir HK í Lengjudeildinni og þá spilar sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur við KR. Grótta mætir Haukum og þá heimsækir Aftureldingar, sem er án sigurs, lið Fylkis í Árbæ.
Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.
Höttur/Huginn og KFA ljúka 6. umferð 2. deildar karla á Fellavelli klukkan 19:15. Höttur/Huginn er á botninum með eitt stig og í leit að fyrsta sigrinum en KFA er með 7 stig í 7. sæti.
Annar grannaslagur er á dagskrá í 3. deild en þar mætast Ýmir og Augnablik í Kórnum. Augnablik er í 2. sæti með 13 stig en Ýmir með 4 stig í 10. sæti.
Leikir dagsins:
Lengjudeild kvenna
19:15 ÍA-HK (Akraneshöllin)
19:15 Grindavík/Njarðvík-KR (JBÓ völlurinn)
19:15 Grótta-Haukar (Vivaldivöllurinn)
19:15 Fylkir-Afturelding (tekk VÖLLURINN)
2. deild karla
19:15 Höttur/Huginn-KFA (Fellavöllur)
2. deild kvenna
16:00 Einherji-Selfoss (Vopnafjarðarvöllur)
19:15 KH-KÞ (Valsvöllur)
20:00 Smári-ÍH (Fagrilundur - gervigras)
3. deild karla
19:15 Ýmir-Augnablik (Kórinn)
4. deild karla
19:15 Árborg-Kría (JÁVERK-völlurinn)
19:15 Vængir Júpiters-Álftanes (Fjölnisvöllur - Gervigras)
20:00 KÁ-Hafnir (BIRTU völlurinn)
Lengjudeild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍBV | 10 | 8 | 1 | 1 | 41 - 7 | +34 | 25 |
2. HK | 10 | 6 | 1 | 3 | 21 - 15 | +6 | 19 |
3. Grótta | 9 | 6 | 0 | 3 | 24 - 14 | +10 | 18 |
4. Grindavík/Njarðvík | 10 | 5 | 2 | 3 | 17 - 15 | +2 | 17 |
5. KR | 9 | 5 | 1 | 3 | 22 - 21 | +1 | 16 |
6. Keflavík | 9 | 3 | 3 | 3 | 14 - 12 | +2 | 12 |
7. Haukar | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 22 | -10 | 10 |
8. ÍA | 9 | 2 | 3 | 4 | 12 - 17 | -5 | 9 |
9. Fylkir | 10 | 2 | 0 | 8 | 14 - 28 | -14 | 6 |
10. Afturelding | 9 | 1 | 0 | 8 | 3 - 29 | -26 | 3 |
Athugasemdir