Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 13:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjörnum prýdd æfing hjá ÍA á dögunum
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er óhætt að það hafi verið stjörnum prýdd æfing hjá ÍA á Akranesi á dögunum.

Núna er í gangi landsleikjahlé en íslenska landsliðið er að fara að spila við Skotland og Norður-Írland í æfingaleikjum á Bretlandseyjum.

Það er orðið smá síðan tímabilið í stærstu deildum Evrópu kláraðist en íslensku leikmennirnir sem spila í þessum deildum hafa haldið sér í formi fyrir landsliðið með ákveðnum leiðum; meðal annars með því að æfa með félögum hér heima.

Nokkrir þeirra æfðu með ÍA enda uppaldir þar og með fjölskuldu upp á Akranesi.

ÍA birti á dögunum myndband á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem má sjá Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teit Þórðarson á æfingu hjá með liðinu. Hákon spilar með Lille í Frakklandi, Ísak hjá Köln í Þýskalandi og Stefán Teitur er hjá Preston á Englandi en þeir eru allir uppaldir hjá ÍA.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið en þess má geta að bróðir Hákons, hann Haukur Andri, er leikmaður ÍA.

@knattspyrnufelag.ia

Hágæða æfing í gær. Sjáið sigurliðið í lokin ????????

? Kendrick Lamar/NotLikef(1617641) - Burning Man

Athugasemdir
banner