Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yamal: Aðalatriðið er að tjá sig á vellinum
Mynd: EPA
Margir heimsklassa leikmenn mættust í kvöld þegar Spánn vann ótrúlegan 5-4 sigur gegn Frakklandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar.

Hinn 17 ára gamli Lamine Yamal skoraði tvennu en hann skoraði fimmta mark Spánar á 67. mínútu og kom liðinu í 5-1. Rayan Cherki skoraði og lagði upp í sínum fyrsta landsleik fyrir Frakka í kjölfarið og Dani Vivian varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Yamal var valinn maður leiksins og hann var að vonum ánægður í leikslok.

„Aðalatriðið er að tjá sig á vellinum. Frakkland er með frábært lið, margir heimsklassa leikmenn svo það er eðlilegt að við þjáðumst allt til enda. Að lokum var munurinn eftir 60 mínútur of mikill. Ég er ánægður með sigurinn," sagði Yamal.
Athugasemdir
banner