Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Gæti tekið við Atalanta þrátt fyrir ömurlegt tímabil
Mynd: EPA
Ítalska félagið Atalanta er alvarlega að skoða þann mögulega að fá króatíska þjálfarann Ivan Juric til að taka við keflinu af Gian Piero Gasperini.

Gasperini yfirgaf Atalanta á dögunum eftir níu farsæl ár hjá félaginu.

Hann tók við Roma af Claudio Ranieri og er Atalanta nú í leit að arftaka hans.

Sky Sports segir nokkur nöfn vera á borði hjá Atalanta. Félagið hefur sett sig í samband við Thiago Motta sem var rekinn frá Juventus undir lok tímabils, en það ætlar einnig að funda með Juric og Raffaele Palladino.

Það kemur á óvart að Juric sé orðaður við starfið eftir ömurlegt tímabil.

Hann tók við Roma í september eftir að Daniele De Rossi var rekinn, en hann entist ekki mikið lengur því aðeins tveimur mánuðum síðar var hann látinn fara eftir röð slakra úrslita.

Juric sneri aftur í þjálfun í lok desember en þá tók hann við Southampton í ensku úrvalsdeildina. Honum var úthlutað það verkefni að halda liðinu uppi í deild þeirra bestu, en hann var langt frá því að ná því markmiði.

Liðið vann aðeins einn leik undir hans stjórn og fór það svo að liðið setti nýtt met með því að falla niður um deild þegar sjö umferðir voru eftir og var hann horfinn á braut sólarhring síðar.

Hrikalega vont tímabil í alla staði, en áður stýrði hann Torino við ágætis orðstír ásamt því að hafa þjálfað Hellas Verona, Genoa, Crotone og Mantova.

Igor Tudor og Patrick Vieira eru einnig á listanum hjá Atalanta, en það verður spennandi að sjá hvaða þjálfari verður fyrir valinu fyrir komandi leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner