Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur að Mbeumo geti spilað fyrir öll bestu liðin
Bryan Mbeumo.
Bryan Mbeumo.
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn Ian Wright telur að Bryan Mbeumo geti spilað fyrir öll toppliðin á Englandi.

Mbeumo er eftirsóttur í sumar en hann er sagður hafa valið Manchester United. Talið er að viðræður Brentford og United fari af stað í þessari viku.

Mbeumo átti frábært tímabil með Brentford þar sem hann skoraði 20 mörk í 38 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

„Hann gæti spilað fyrir öll bestu liðin á Englandi," sagði Wright í hlaðvarpi.

„Ivan Toney tók allt hrósið hjá Brentford en þegar þú horfðir á hann þá og núna, þá er meiri stöðugleiki. Fólk er að fylgjast með honum."
Athugasemdir
banner