Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er opinn fyrir því að ganga í raðir Manchester United í sumar þrátt fyrir að félagið sé ekki í Meistaradeildinni.
Þetta herma heimildir TalkSport.
Þetta herma heimildir TalkSport.
Gyökeres er eftirsóttur og hefur til dæmis verið mikið orðaður við Arsenal.
Man Utd er líka í leit að sóknarmanni og þar þekkir stjórinn, Rúben Amorim, Gyökeres vel eftir að hafa þjálfað hann í Sporting. Amorim hefur haldið sambandi við Gyökeres.
Man Utd er ekki í neinni Evrópukeppni en það er ekki hindrun fyrir félagið ef það vill sækja Gyökeres. Leikmaðurinn er opinn fyrir því að ganga í raðir Man Utd en hann er fáanlegur fyrir 60 milljónir evra í sumar.
Gyökeres hefur skorað 97 mörk í 102 leikjum hjá Sporting.
Athugasemdir