
Fjölnir heimsóttu Njarðvíkinga á JBÓ vellinum í kvöld þegar sjötta umferð Lengjudeildarinnar fór fram.
Njarðvíkingar komust snemma yfir en Fjölnismenn náðu að jafna tæpu korteri seinna og þar við sat.
Lestu um leikinn: Njarðvík 1 - 1 Fjölnir
„Nokkuð ánægður með stigið. Nokkuð ánægður með það sem við lögðum í leikinn" sagði Gunnar Már Guðmundsson þjálfari Fjölnis eftir leik.
„Við ætluðum að koma og verja markið okkar og fáum á okkur svolítið slysamark í upphafi. Fyrirgjöf sem endar í markinu. Öðru leyti fannst mér við loka vel á þá. Það var markmiðið okkar í dag"
„Erfitt að spila í þessum vindi fyrir bæði lið náttúrulega. Við virðum þetta stig alveg klárlega"
Þrátt fyrir að vera nokkuð sáttir með stigið fannst Fjölnismönnum þeir ekkert endilega vera langt frá því að taka öll þrjú stigin.
„Nei í sjálfu sér ekki. Þó við höfum ekki endilega fengið opin dauðafæri þá voru svona sénsar, við fengum hornspyrnur og aukaspyrnur þarna undir lokin. Þetta hefði alveg geta dottið okkar meginn eins og þetta hefði geta dottið hinumeginn. Ég held að 1-1 niðurstaða sé alveg sanngjörn niðurstaða"
Fjölnir er eftir umferðina í kvöld eina liðið sem á eftir að koma sigri á töfluna.
„Við höldum bara áfram. Það styttist í hann, það er alveg klárt"
Nánar er rætt við Gunnar Már Guðmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 6 | 4 | 2 | 0 | 10 - 3 | +7 | 14 |
2. Njarðvík | 6 | 3 | 3 | 0 | 15 - 5 | +10 | 12 |
3. HK | 6 | 3 | 2 | 1 | 11 - 6 | +5 | 11 |
4. Þór | 6 | 3 | 1 | 2 | 16 - 13 | +3 | 10 |
5. Þróttur R. | 6 | 3 | 1 | 2 | 11 - 9 | +2 | 10 |
6. Keflavík | 5 | 3 | 0 | 2 | 13 - 7 | +6 | 9 |
7. Völsungur | 6 | 3 | 0 | 3 | 9 - 13 | -4 | 9 |
8. Grindavík | 5 | 2 | 1 | 2 | 17 - 13 | +4 | 7 |
9. Fylkir | 6 | 1 | 2 | 3 | 7 - 10 | -3 | 5 |
10. Leiknir R. | 6 | 1 | 1 | 4 | 6 - 19 | -13 | 4 |
11. Fjölnir | 6 | 0 | 3 | 3 | 7 - 13 | -6 | 3 |
12. Selfoss | 6 | 1 | 0 | 5 | 4 - 15 | -11 | 3 |