HM-fararnir frá Suður-Kóreu og Panama unnu vináttulandsleiki sína í nótt og styttist óðfluga í upphafsflautið á heimsmeistaramótinu.
Suður-Kórea hafði betur gegn El Salvador þökk sé marki frá Dong-gyeong Lee í síðari hálfleik.
Kóreubúar voru talsvert betri allan leikinn en sköpuðu sér ekki mikið af hættulegum færum gegn skipulögðum varnarleik andstæðinganna. Leikurinn fór fram í Utah í Bandaríkjunum.
Á sama tíma skoraði Panama fjögur mörk í sigri gegn Dóminíska lýðveldinu.
Suður-Kórea er í riðli með Tékklandi, Suður-Afríku og heimamönnum í Mexíkó á meðan Panama er í afar erfiðum riðli með Englandi, Króatíu og Gana.
Suður-Kórea 1 - 0 El Salvador
1-0 Dong-gyeong Lee ('57)
Panama 4 - 2 Dóminíska lýðveldið
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


