Stjarnan mætti í dag danska liðinu Viborg í æfingaleik á Alicante á Spáni. Stjarnan er í æfingaferð sinni en um tveir mánuðir eru í að Besta deildin hefjist. Viborg er að undirbúa sig fyrir seinni hluta dönsku Superliga.
Stjarnan tefldi fram mjög ungu byrjunarliði í leiknum en einungis einn leikmaður sem fæddur er fyrir aldamót byrjaði leikinn. Danska liðið tefldi einnig fram frekar ungu liði í leiknum.
Stjarnan komst yfir í leiknum á þegar markvörðurinn Kasper Kiilerich varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Einhverjir vildu meina að boltinn hefði ekki farið yfir línuna en dómarinn dæmdi mark.
Carl Christensen skoraði stuttu síðar hinu megin, hann átti skot sem fór af Baldri Loga og í netið og var staðan jöfn í hálfleik. Sigurmarkið kom svo á 57. mínútu þegar Ganverjinn Malik Abubakari skoraði fyrir Viborg.
Stjarnan á næst leik gegn úkraínska liðinu Zhytomyr á miðvikudag.

Byrjunarlið Stjörnunnar
Mathias Rosenörn (1993)
Bjarki Hauksson (2006)
Sigurður Gunnar Jónsson (2004) - fyrirliði
Sigurbergur Áki Jörundsson (2004)
Örvar Logi Örvarsson (2003)
Baldur Logi Guðlaugsson (2002)
Daníel Finns Matthíasson (2001)
Helgi Fróði Ingason (2005)
Þorbergur Þór Steinarsson (2000)
Elvar Máni Guðmundsson (2006)
Dagur Orri Garðarsson (2005)
Sejr på 2-1 over Stjarnan i det spanske.
— Viborg FF ?? (@viborgff) February 5, 2024
?? Christensen
?? Malik pic.twitter.com/u440tX9OaH
Athugasemdir