Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mán 05. febrúar 2024 09:49
Elvar Geir Magnússon
Bauluðu og heimtuðu endurgreiðslu því Messi spilaði ekki
Reiðir fótboltaáhugamenn í Hong Kong bauluðu á Inter Miami og heimtuðu endurgreiðslu því Lionel Messi var allan tímann á bekknum í æfingaleik gegn úrvalsliði deildarinnar í Hong Kong.

Inter Miami vann 4-1 sigur en 40 þúsund mættu á leikinn, flestir bara í þeim tilgangi að sjá Messi spila. Argentínski heimsmeistarinn er hinsvegar að glíma við meiðsli aftan í læri og lék ekki.

David Beckham, eigandi Inter Miami, hélt ræðu eftir leikinn en lítið heyrðist í henni þar sem áhorfendur bauluðu.

Stjórnvöld í Hong Kong segja að skipuleggjendur leiksins, Tatler Asia, skuldi vallargestum útskýringu. Fyrirtækið segist ekki hafa haft neinar upplýsingar um að Messi tæki ekki þátt í leiknum.

Luis Suarez, sem gekk í raðir Inter Miami, spilaði heldur ekki leikinn þar sem hann er meiddur í hné.

„Við skiljum vonbrigði stuðningsmanna og biðjumst afsökunar, en þetta er ákvörðun sem var tekin í samráði við sjúkraþjálfara okkar. Ef hann hefði getað spilað hluta af leiknum hefði hann gerst það, en það hefði verið of mikil áhætta fólgin í því," segir Gerardo Martino, stjóri Inter.."
Athugasemdir
banner
banner