Egyptaland hefur rekið landsliðsþjálfara sinn, hinn portúgalska Rui Vitória, eftir að liðið tapaði gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og féll úr leik í Afríkukeppninni.
Egyptar töpuðu í 16-liða úrslum eftir vítakeppni 8-7 en þeir voru í brasi í keppninni og unnu ekki leik.
Það hjálpaði ekki að stjörnuleikmaður liðsins, Mohamed Salah, meiddist.
Egyptar töpuðu í 16-liða úrslum eftir vítakeppni 8-7 en þeir voru í brasi í keppninni og unnu ekki leik.
Það hjálpaði ekki að stjörnuleikmaður liðsins, Mohamed Salah, meiddist.
Egyptaland gerði þrjú 2-2 jafntefli í riðlakeppninni, gegn Mósambík, Gana og Grænhöfðaeyjum.
Eftir fund egypska fótboltasambandsins í gær var ákveðið að reka Vitória og hans aðstoðarmenn. Vitória er fyrrum stjóri Benfica og Spartak Moskvu en hann var ráðinn þjálfari Egypta árið 2022.
Það hefur verið röð þjálfaraskipta í Afríkukeppninni. Þjálfarar Alsír, Gambíu, Gana, Túnis, Tansaníu og Fílabeinsstrandarinnar hafa allir látið af störfum.
Athugasemdir


