Mauricio Pochettino stjóri Chelsea segist hafa verið í jákvæðum skilaboðasamskiptum við eigendur félagsins. Framtíð Argentínumannsins hefur verið í umræðunni eftir erfitt gengi Chelsea og tvo tapleiki í röð.
Chelsea fór niður í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag eftir 4-2 tap gegn Úlfunum á heimavelli sínum.
Chelsea fór niður í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag eftir 4-2 tap gegn Úlfunum á heimavelli sínum.
Chelsea hefur eytt meira en milljarði pund í leikmannakaup síðan Todd Boehly tók yfir félagið í maí 2022 en aðeins unnið níu úrvalsdeildarleiki á tímabilinu.
„Ég held að við stöndum öll saman í þessari baráttu og það er mikilvægt," segir Pochettino en stuðningsmenn Chelsea bauluðu á Stamford Bridge um helgina.
„Ég hef fengið góð skilaboð frá eigendunum. Ég er í samskipti við þá og íþróttastjórann á hverjum degi. Stuðningsmennirnir þurfa að sýna okkur traust. Leikmennirnir þurfa að finna fyrir stuðningi. Við þurfum að vera í þessu saman."
Chelsea heimsækir Aston Villa í FA-bikarnum á morgun en liðin eru að mætast aftur þar sem markalaust jafntefli varð niðurstaðan á Stamford Bridge.
Athugasemdir

