Mauricio Pochettino, stjóri Chelsea, kom með frekar undarlegan samanburð á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Aston Villa í dag.
Argentínska stjóranum finnst afar skrítið að fjölmiðlar tala um frammistöðu Chelsea og hvað hún er slæm en sögðu lítið þegar Liverpool tapaði fyrir Arsenal á Emirates um helgina.
Chelsea hefur spilað langt undir getu. Liðið situr í 11. sæti úrvalsdeildarinnar og stefnir í það verði án Evrópubolta annað árið í röð.
„Ég er þjálfari og stundum getum við gert mistök en þannig er fótboltinn. Þetta gerðist og við þurfum að halda áfram að reyna og sýna styrk. Við erum með mjög góðan hóp af leikmönnum, en af ólíkum ástæðum erum við ekki að spila samkvæmt væntingum fólks, en væntingar eru ekki það sama og raunveruleikinn.“
„Það er erfitt að fá það sem maður á skilið. og þess vegna kom þolinmæðin aldrei. Eftir að hafa tapað gegn Liverpool þá var sagt: „Algert klúður. Sjáið Chelsea, hversu slæmt“. Nú tapaði Liverpool gegn Arsenal og ég heyrði ekkert um það, samt voru úrslitin svipuð þegar við spiluðum við Liverpool,“ sagði Pochettino á blaðamannafundinum.
LIverpool tapaði titilbaráttuleik en er samt sem áður enn á toppnum með tveggja stiga forystu.
Athugasemdir


