Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 17:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Stjarnan gerði jafntefli við öflugt úkraínskt lið
Byrjunarlið dagsins.
Byrjunarlið dagsins.
Mynd: Stjarnan
Stjarnan lék sinn annan leik í æfingaferð sinni á Spáni í dag. Andstæðingur dagsins var úkraínska liðið Polissya Zhytomyr.

Stjarnan tapaði 1-2 gegn Viborg á mánudaginn og voru ellefu breytingar á byrjunarliðinu milli leikja.

Emil Atlason kom Stjörnunni yfir eftir undirbúning frá Róberti Frosta Þorkelssyni. Úkraínumennirnir jöfnuðu svo ellefu mínútum síðar og þar við sat.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
Árni; Andri, Sindri, Guðmundur, Þórarinn; Jóhann Árni, Róbert Frosti, Hilmar Árni; Adolf Daði, Emil, Örvar.

Úkraínska liðið er í þriðja sæti úkraínsku deildarinnar eftir sautján umferðir, tveimur stigum frá toppnum. Liðið er stigi fyrir ofan Shakhtar sem á reyndar tvo leiki á það lið. Zorya Luhansk, sem Breiðablik mætti í Sambandsdeildinni, situr í 14. sæti deidlarinnar og er tuttugu stigum á eftir Polissya sem hefur spilað þremur leikjum meira.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Brentford B á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner