Anton Logi var seldur til Haugesund eftir að hafa heillað á síðasta tímabili, sérstaklega seinni hlutann.
Breiðablik byrjaði formlega sitt undirbúningstímabil á dögunum. Liðið byrjaði að æfa í lok janúar sem er talsvert síðar en önnur lið. Blikar fóru í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili og lauk því tímabilinu ekki fyrr en um miðjan desember, eða rúmum tveimur mánuðum eftir að Íslandsmótinu lauk.
Breiðablik hefur misst öfluga leikmenn frá því að tímabilinu lauk. Davíð Ingvarsson fór á frjálsri sölu til Kolding í Danmörku, Anton Logi Lúðvíksson var seldur til Haugesund í Noregi, Ágúst Eðvald Hlynsson fór til AB í Danmörku og Gísli Eyjólfsson var seldur til Halmstad í Svíþjóð.
Fótbolti.net ræddi við þjálfarann Halldór Árnason í dag og var hann spurður út í hópinn og undirbúningstímabilið.
Breiðablik hefur misst öfluga leikmenn frá því að tímabilinu lauk. Davíð Ingvarsson fór á frjálsri sölu til Kolding í Danmörku, Anton Logi Lúðvíksson var seldur til Haugesund í Noregi, Ágúst Eðvald Hlynsson fór til AB í Danmörku og Gísli Eyjólfsson var seldur til Halmstad í Svíþjóð.
Fótbolti.net ræddi við þjálfarann Halldór Árnason í dag og var hann spurður út í hópinn og undirbúningstímabilið.
„Við þurfum að styrkja miðjuna eftir að Gísli og Ágúst Hlyns fóru. Við vorum alveg meðvitaðir um það að það væri mikill áhugi á Antoni Loga, það kom okkur ekki á óvart að hann skildi fara og við erum ágætlega settir í hans stöðu. Það var mjög óvænt að Ágúst og Gísli skildu fara, mjög slæmt að missa þá, en auðvitað frábært fyrir þá að fá tækifæri erlendis - vonandi einhverjir draumar að rætast þar," sagði Dóri.
„Við þurfum að bæta við okkur miðjumanni. Við erum að skoða í fremstu línu, síðasta sumar missum við Stefán Inga (Sigurðarson) og svo var Klæmint Olsen á láni. Við erum að skoða að bæta við okkur 'níu', erum með marga menn sem geta spilað í fremstu línu, en okkur vantar kannski þennan náttúrulega markaskorara sem Stefán og Klæmint eru."
„Við erum líka með Kristófer Inga (Kristinsson) sem er frábær leikmaður. Hann hefur verið að glíma við meiðsli eftir að hann kom til okkar síðasta sumar. Hann getur spilað allar stöðurnar frammi og jafnvel neðar. Við erum með Eyþór Wöhler sem hefur sýnt að hann getur skorað í þessari deild og svo Kidda (Steindórs), Jason, Aron (Bjarnason), Dag (Örn Fjeldsted) og fleiri sem geta spilað þarna í kring. Ein hreinræktuð 'nía' myndi styrkja okkur mikið."
„Við erum alltaf opnir fyrir því að bæta og styrkja hópinn okkar og ekki lokað fyrir það að bæta líka við okkur varnarmanni ef rétti leikmaðurinn dettur inn."
„Vona að við missum ekki fleiri menn"
Ertu á þessum tímapunkti meðvitaður um einhvern áhuga á þínum leikmönnum, einhverjum sem gæti farið erlendis áður en tímabilið byrjar?
„Að mér vitandi er ekkert í gangi, en hlutirnir geta gerst hratt og gerðust hratt bæði með Ágúst og Gísla. Við þurfum alltaf að vera klárir, horfa fram í tímann og vera með hugmyndir um hvernig fylla eigi í skörð sem gætu myndast. Ég vona að við missum ekki fleiri menn."
Jason Daði Svanþórsson er leikmaður sem hefur sýnt að hann getur vel spilað í Skandinavíu. Svo er fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson búinn að sila frábærlega undanfarin ár. Fyrst að Gísli fór, gæti Höskuldur líka farið?
„Höskuldur og Jason hafa verið tveir af allra bestu leikmönnum deildarinnar í mörg ár, báðir verið viðloðandi A-landsliðið. Auðvitað erum við alltaf með það bakvið eyrað að það gæti verið áhugi á þessum leikmönnum. Þeir eru algjörir lykilmenn, bæði sem karakterar og leikmenn, það þarf að koma mjög gott tilboð og spennandi tækifæri til þess að þeir fari. Ef það kemur upp þá styðjum við menn í því. Við myndum fylla í þau skörð, en þau eru orðin þónokkur nú þegar eftir síðasta tímabil og það væri gott að halda hópnum svipuðum fyrir utan 2-3 viðbætur."
Geta stillt upp virkilega sterku liði
Breiðablik hefur fengið inn þrjá leikmenn frá því tímabilinu lauk. Aron Bjarnason var keyptur frá Sirius, Kristinn Jónsson var fenginn frá KR og Arnór Gauti Jónsson kom frá Fylki. Þeir hafa hins vegar misst þrjá byrjunarliðsmenn frá lokaleikjum sínum á síðasta tímabili og leikmann sem kom við sögu í nánast öllum leikjunum á síðasta tímabili.
Líður Dóra eins og Blikar séu í eltingaleik á markaðnum þar sem meiri mynd sé komin á hópana hjá mörgum öðrum liðum?
„Nei og ég er alls ekki í einhverju panikki með að styrkja hópinn eða bæta við mönnum. Þó að við ætlum okkur að gera það þá er það meira upp á breidd í hópnum og annað. Við erum með mjög sterkt lið og getum stillt upp virkilega sterku liði og erum með ágætis breidd. Þegar leikirnir eru orðnir þetta margir, hátt í 40 keppnisleikir á tímabili, þá þarftu breiðari hóp. Það er ekkert stress að ná inn leikmanni alveg strax, snýst meira um að ná inn réttu týpunum."
Hópurinn lítur vel út
Hvernig er staðan á hópnum í dag?
„Það eru allir að æfa. Eins og oft er þegar menn fara af stað þá fá menn smá stífleika hér og þar, en ekkert alvarlegt. Það er búinn að vera rosalegur kraftur í þessa daga sem við erum búnir að æfa, hópurinn lítur mjög vel út og mjög spennandi að taka stutt og snarpt undirbúningstímabil. Hópurinn lítur vel út og ef við styrkjum okkur örlítið þá erum við á mjög góðum stað."
Margir að verða samningslausir
Þrettán leikmenn sem spiluðu með Blikum á síðasta tímabili verða samningslausir eftir komandi tímabil. Önnur félög mega ræða við suma þeirra strax í apríl og svo flesta í maí um mögulegan samning fyrir tímabilið 2025.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson var að framlengja samning sinn við Breiðablik og þeir Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman skrifuðu nýlega undir eins árs samninga. Eftir eru þá tíu leikmenn sem lengra er síðan að skrifuðu undir en eiga ekki alltof mikið eftir af samningum sínum.
Hvernig er þessi staða fyrir þjálfara?
„Það eru viðræður í gangi við einhverja leikmenn og ég er bjartsýnn á að það verði klárað fljótlega. Arnór Sveinn, Kiddi og Andri Rafn eru á þeim staða að þeir og klúbburinn voru sáttir við að gera eins árs samning, voru að skrifa undir. Það er lítið stress með þá."
„Auðvitað viltu ekki að það séu þrettán leikmenn að renna út á sama tíma, það segir sig sjálft, en ég held að við náum að semja við lykilmenn á næstu vikum og svo kemur í ljós með aðra þegar líður á sumarið eins og eðlilegt er."
Öðruvísi undirbúningstímabil
Undirbúningstímabilið er styttra hjá Blikum í ár en undanfarin ár. Er það öðruvísi sett upp?
„Þetta er það, miklu miklu færri leikir en við höfum fengið áður. Við erum ekki að fá leiki þar sem hægt er að skipta öllu liðinu út í hálfleik og deilt mínútum á allan hópinn. Lengjubikarinn er þannig að það eru reglur um skiptamenn; sjö varamenn og þá verða þrjár að koma í hálfleik. Í hverjum leik ertu því með sex leikmenn sem geta bara spilað hálfleik og fjórir leikmenn sem verða að spila allar 90. Þú vilt reyna hafa álagið svipað á mönnum, en þessir leikir koma svolítið í veg fyrir það. Við þurfum að passa okkur að dreif álaginu rétt á milli leikja og horfa á þessa leiki meira sem fyrstu æfingaleiki. Þó að þetta heiti Lengjubikarinn þá þurfum við að geta horft aðeins framhjá því.
„Við höfum verið að fara í æfingaferðir í lok janúar síðustu ár, spilað við sterk erlend lið og tekið þátt í mótum. Við höfum keyrt þetta grimmt af stað til að vera í leikformi fyrir þau verkefni. Þá vorum við að byrja í nóvember. Það er sirka tíminn sem við höfum núna fram að móti. Í rauninni höfum við ágætis reynslu af því að byggja upp álag og koma mönnum í form á átta vikum. Ég hef ekki stórar áhyggjur af því. Við þurfum að passa að brekkan verði ekki of brött í byrjun, vil helst ekki missa menn í lengri meiðsli af því að það er stutt í mót. Það er mesta áskorunin að missa ekki menn út á meðan við keyrum þetta upp."
„Við erum búnir að liggja yfir þessu, búnir að leita okkur ráða. Við höfum farið í gegnum álagsstýringuna síðustu ár, skoðað tölur aftur í tímann. Við erum með ágæta mynd af því hvernig við viljum gera þetta."
Athugasemdir



