Chelsea er komið áfram í enska bikarnum eftir góðan sigur á Aston Villa á Villa Park í kvöld.
Conor Gallagher kom liðinu yfir þegar hann rak smiðshöggið á frábæra sókn liðsins. Nicolas Jackson bætti öðru markinu við stuttu síðar þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Malo Gusto.
Enzo Fernandez gulltryggði sigur liðsins með marki beint úr aukaspyrnu snemma í síðari hálfleik.
Enzo hefur verið mikið í fréttum í dag en sögusagnir hafa verið um að hann vilji yfirgefa félagið. Hann fullvissaði hins vegar stuðningsmenn liðsins í fagnaðarlátunum um að hann vilji vera áfram hjá Lundúnarliðinu.
Moussa Diaby skoraði sárabótarmark í uppbótatíma þegar hann átti skot í stöngina og inn. Það var of seint fyrir Villa en úrslitin voru þegar ráðin.
Chelsea fær Leeds í heimsókn í næstu umferð.
Það er jafnt í leik Nottingham Forest og Bristol City þegar þetta er skrifað en síðari hálfleikur framlengingarinnar er framundan.
Nott. Forest 1 - 1 Bristol City (Framlenging í gangi)
1-0 Divock Origi ('8 )
1-1 Jason Knight ('14 )
Aston Villa 1 - 3 Chelsea
0-1 Conor Gallagher ('11 )
0-2 Nicolas Jackson ('21 )
0-3 Enzo Fernandez ('54 )
1-3 Moussa Diaby ('90 )




