Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gætu misst vandræðagemsann sem er einn sá efnilegasti í heimi
Í leik með U17 landsliðinu.
Í leik með U17 landsliðinu.
Mynd: EPA
Framtíð hins stórefnilega Paris Brunner hjá Borussia Dortmund er sögð í óvissu.

Í sumar mun þessi stórefnilegi leikmaður eiga eitt ár eftir af samningi sínum en Bild segir frá því að faðir leikmannsins hafi ferðast til Ítalíu og fundað með stórum félögum þar.

Brunner, sem er 17 ára gamall, er sagður vera biðja um stóran launatékka en viðræðurnar við Dortmund ganga ekki sérlega vel. Ef hann verður ekki búinn að framlengja við félagið í sumar, þá er möguleiki á því að Dortmund muni selja hann.

Vandræðagemsi
Brunner er einn efnilegasti leikmaður Þýskalands en hann er mikill vandræðagemsi og hefur verið í fréttum vegna þess. Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Cole Campbell og Brunner voru settir í skammarkrókinn hjá Dortmund eftir að þeir stálust út af herbergi sínu eftir miðnætti í æfingaferð liðsins á Marbella í janúar.

Brunner var líka settur í agabann í fyrra en það var ekki fyrsta brot hans hjá félaginu.

Brunner er talinn með efnilegustu framherjum heims en hann var besti maður mótsins þegar Þýskaland vann HM U17 liða í fyrra.
Athugasemdir
banner